Ég heiti Ástrós Eva Ársælssdóttir og er nemandi á fyrsta ári í menntun framhaldsskólakennara, ásamt því að taka viðbótardiplómu í umhverfis- og auðlindafræði. Ég útskrifaðist með B.Sc. gráðu í líffræði sumarið 2022 og hóf nám í kennslufræði haustið 2025.

Frá því ég var unglingur hef ég oft velt því fyrir mér hvað ég vildi starfa við í framtíðinni. Hugmyndirnar voru margar, meðal annars dýralæknir, líffræðingur, viðskiptafræðingur og kennari. Kennarastarfið virtist alltaf leita aftur og aftur til mín og þess vegna ákvað ég að skrá mig í kennaranám að loknu B.Sc. náminu.

Í framhaldsskóla myndaðst hjá mér mikill áhugi á líffræði og náttúruvísindum. Mér fannst sérstaklega áhugavert að læra um hvernig lífverur starfa, þróast og tengjast hver annarri og umhverfinu sínu. Sá áhugi varð til þess að ég ákvað að skrá mig í frekara nám í tengslum við þetta.

Það sem mér finnst heillandi við líffræði er hversu fjölbreytt grein hún er. Hún hjálpar okkur að skilja allt frá smæstu frumum upp í flókin vistkerfi og sýnir hvernig allt líf á jörðinni tengist á einn eða annan hátt. Ég hef sérstaklega gaman af plöntufræði, dýrafræði, vistfræði, umhverfisfræði og verndunalíffræði.

Þar sem ég hef svona mikinn áhuga á efninu hef ég einnig sterkan vilja til að miðla þeim áhuga áfram til nemenda og vonandi hjálpa þeim að sjá að líffræði snýst ekki eingöngu um utanbókarlærdóm, heldur einnig um að skilja hvernig lífverur, umhverfi og náttúra tengjast og hvernig allt í heiminum okkar vinnur saman.