Greinagerð um vefinn
Þessi vefsíða er unnin sem lokaverkefni í námskeiðinu Hönnun námsefnis, stafræn miðlun og eflandi kennslufræði við Háskóla Íslands. Markmið verkefnisins er að þróa hugmynd að námsvef fyrir framhaldsskólanemendur sem styður við nám og upprifjun í líffræði.
Hugmyndin kviknaði út frá því að hefðbundið námsefni í líffræði getur oft verið þungt og textamikið. Nemendur þurfa gjarnan að lesa langa texta til að ná utan um efnið, sem getur gert upprifjun tímafreka og flókna. Með vefnum er leitast við að setja efnið fram á einfaldari og aðgengilegri hátt, þar sem það er brotið niður í smærri einingar sem auðvelda yfirsýn og skilning.
Efnið á vefnum byggir á kafla um plöntur úr kennslubókinni Inquiry into Life eftir Sylvia Mader. Efnið hefur verið aðlagað og sett fram með áherslu á skýrar samantektir, myndrænar útskýringar og einfalt orðalag. Markmiðið er að þýða það yfir á íslensku og draga fram lykilatriði án þess að yfirhlaða nemendur með upplýsingum.
Í uppbyggingu vefsins er lögð áhersla á fjölhátta framsetningu (e. multimodal learning), þar sem texti, myndir og gagnvirkir þættir vinna saman. Nemendur geta þannig nálgast efnið á mismunandi hátt, t.d. með því að lesa samantektir, skoða myndir eða prófa sig áfram með spurningum og flettikortum. Slík framsetning getur stuðlað að auknum skilningi og gert námið aðgengilegra fyrir fjölbreyttan hóp nemenda.
Einnig er stuðst við hugmyndir um virka upprifjun (e. active recall), þar sem nemendur eru hvattir til að taka virkan þátt í náminu með því að svara spurningum og rifja upp efnið sjálfir. Með því að bjóða upp á slíka sjálfsprófun gefst nemendum tækifæri til að meta eigin skilning og fylgjast með framförum sínum.
Að auki er horft til þess að áhugahvöt nemenda skiptir miklu máli í námi. Rannsóknir benda til þess að áhugahvöt tengist m.a. því hvort nemendur upplifi að þeir ráði við verkefnið og sjái tilgang í því. Þetta tengist hugmyndum Bandura (1986) um sjálfstraust í námi. Með því að setja efnið fram á skýran hátt og brjóta það niður í smærri einingar verður það viðráðanlegra fyrir nemendur og líklegra til að styðja bæði við skilning og áhugahvöt.
Að lokum er markmið vefsins að auka aðgengi að námsefninu og bjóða upp á fleiri en eina leið til að vinna með það. Þannig er leitast við að koma betur til móts við ólíkar þarfir nemenda og styðja við nám þeirra á markvissari hátt.
Heimildaskrá
Myndir:
Upplýsingamyndrit og skipulag myndefnis voru að hluta til unnin í Canva. Við vinnslu verkefnisins var einnig stuðst við gervigreindarforritið ChatGPT og myndvinnslukerfið DALL·E frá OpenAI til að þróa hugmyndir að myndefni, upplýsingamyndritum og skýringarmyndum.
Sumar myndir voru jafnframt teknar úr kennslubókinni Inquiry Into Life og aðlagaðar fyrir vefinn. Texti og heiti á myndunum voru þýdd yfir á íslensku með aðstoð ChatGPT og síðan yfirfarin og unnin áfram af höfundi til að tryggja að þær hentuðu námsefninu og framsetningu vefsins.
Bækur sem námsefnið byggir á
Mader, S. S. og Windelspecht, M. (2025). Inquiry into life. McGraw-Hill.
Uppsetning og hönnun
Öll uppsetning, textavinnsla, upptökur og hönnun vefsins var framkvæmd af höfundi.
Við vinnslu verkefnisins var stuðst við hjálparefni og leiðbeiningar frá WordPress, Canva og öðrum opnum hjálparvefjum tengdum vefgerð og stafrænni miðlun.
